Ferlega Fuglabjargið
20.10.2006 13:01:54 / 2_ff

3fu

Fyrir ykkur 3FU-inga sem ennþá skoða þessa síðu, þá vildi eg nu bara láta ykkur vita að við erum komin með nýja

http://www.blog.central.is/3-fu

getið sent annaðhvort mér eða guðnýju e-mail til að fá lykilorðið (hunangskoddi@hotmail.com , eða gudnyjons@hotmail.com)

Reynum svo að vera aktív að halda síðunni uppi

vona að þið skemmtið ykkur í vetrarfríinu, sjáumst á þriðjudaginn

kv.Linda


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 19:34:55 / 2_ff

busaball

Vil bara þakka Sillu fyrir æðislegt fyrirparty, held að við séum nu öll sammála að þetta var þrælöflugt party! Góð mæting, meiraðsegja betri en góð.. allur 3FU mætti og meirihlutinn 3FS líka og þetta var bara stuð. Hefði nu personulega frekar viljað sleppa ballinu og vera aðeins lengur hjá Sillu, þvi mer fannst ballið alls ekkert spes.

En bara takk fyrir æðislegt kvöld, vona að þið hafið öll skemmt ykkur vel og séuð bara sátt með kvöldið.

kv. Linda


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 13:29:04 / arora

Kvedja from Down Under!

G'day mate! Er eg ekki farin ad hljoma eins og sannur Astrali?

hahaha mer lyst alveg rosalega vel a thetta med partyin, vona ad thid haldid afram ad bjoda mer :P eda eg ad bjoda ykkur ef eg fae ad halda party aftur, henni mommu minni leist ekkert a thetta thegar hun kom heim thegar eg helt kvedjupartyid en eg skemmti mer alveg rosalega vel :P

Eg er farin ad sakna Kvenno alveg obaerilega mikid og get sagt ykkur thad ad ensku kennarinn minn herna er ekki einu sinni astrolsk, hun er fra bosniu og talar med hreim... hvert er thessi blessadi heimur ad fara :P vid sem vorum hraedd vid thorey! eg vildi oska thess ad Thorey vaeri ad kenna mer! Tha thyrfti eg ekki ad hlusta a greyid ensku kennarann minn her, sem btw hatar mig thvi eg tala of mikid, hun hefur sent mig ut ur stofunni 1 faert mig 2 og talad vid mig eftir timann 1 og eg get sagt ykkur thad ad eg tala ekki mikid i timunum hja henni, hun bara hatar mig.... og thad segja krakkarnir i bekknum lika. En eg var ad komast ad thvi ad eg tharf ekki ad fara i arlegu profin enda gilda thau ekki neitt fyrir mig en eg aetla pott thett ekki i ensku bara til thess ad pirra hana meira!! :P En eg er ad brillera i staerdfraedi!!! Arora Sigurjonsdottir god i staerdfraedi!?! sidan hvenaer!!! Eg er medal 5 haestu i arinu minu!!!

En allavega eg bid innilega ad heilsa ollum, kennurunum og Kvennaskolans minns!

Kvedja fra Aroru!!

CopyofAroraart.jpg

Good girls go to heaven, bad girls go Down under!

I hope your chickens turn into emus and kick your dunnie in!!

G'day mate, put another shrimp on the barby!


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 14:02:29 / adalheidur

Partý

Tilkynning -
 
Tilkynning!

Ykkar ástkæra
 
Aðalheiður verður 18
 
ára á föstudaginn og
 
í tilefni af því verður 
 
partý!


Mæting uppúr 10 í
 
Desjakór 3, 203
 
Kópavogur.


Látið vita ef þið ætlið
 
 að koma með gesti,
 
 hef ekki ótakmarkað
 
 pláss!


Hlakka til að sjá
 
ykkur, gjafir ekki
 
nauðsynlegar, en vel
 
þegnar!

Látið orðið ganga til
 
 annarra FF-inga.

See'Ya

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 17:28:19 / 2_ff

3FF?

Góðan daginn! Jæja skólinn barað bresta á eina ferðina enn?

3-FF? vá hvað þetta hljómar kjánalega, við erum hálfnuð með Kvennaskólann. Þetta er buið að vera fáránlega fljótt að líða.

en ég verð að segja að þrátt fyrir að ég veit að þetta skólaár verði mun erfiðara en hin tvö þá dauðhlakkar mig til að koma i skólann og hitta ykkur öll. Vona nu bara að bekkurinn tvístrist ekki alltof mikið.. og ég held að við séum öll samála um að reynað halda bekkjarparty á árinu fyrir alla sem voru í 2-FF, jafnvel að bjóða þeim sem voru með okkur i 1-FF? sem dæmi þá eg rakst á Theó í sumar og henni dauðlangar að koma í bekkjarparty til okkar, mer finnst það amk ekki svo galið

en eg vildi nu bara segja nokkur orð, svo sjáumst við vonandi öll hress og kát á þriðjudaginn í setningunni, eg styð meiraðsegja kaffihúsarferð, ef að einhver er til í það... en við sjáumst! adios!

kv. Linda


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 08:42:52 / 2_ff

Hæbb

Heyriði, ætlaði nú bara að kasta kveðju á ykkur, svo kannski að benda ykkur a blog.central.is/palestina

Mér finst samt svo tilvalið að Aðalheiður haldi þetta partý sitt 26 ágúst í stað 25.. þá kannski maður lýti við ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 17:20:06 / 2_ff

hellluu

Jæja elsku hnátur þá er maður bara komin úr sólinni...2 vikna paradís!! Hefði reyndar verið til í kvennó-útileiguna en þið sem fóruð verðið bara að deila öllu slúðrinu með mér..:)
en ætlaði bara að kasta á kveðju...en hvernig væri svo að fjölmenna þjóðhátíð vestmanna..:):)
úúú´jeee....
sé ykkur vonandi bráðlega..:)
kv.gabriella

» 15 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 18:43:10 / 2_ff

ÚTILEGA !!?

jæja hvað segir bekkurinn um kvennó útileguna ?

Er stemning fyrir henni eða hvað??

Kv.Guðrún Sif

(",)


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 09:56:21 / 2_ff

Útilega

Sælt veri fólkið!!

Ætlaði bara að þakka fyrir laugardagskweldið.. það er að segja þau sem að mættu... það var allavega rosa stuð heima hjá Guðnýju 17. júní!!

Mér datt líka í hug að fólk væri orðið þreytt á því að skrolla í sífellu niður á hinu blogginu ;) Svo var ég líka að pæla... ætla einhverjir í Kvennóútileguna?? Hún er allavega helgina 15-16 júlí (helgina áður en ég fer út ;) )... ég veit að Lydía og Guðrún og Vilborg eru æsispenntar fyrir henni... bara tékka á ykkar stöðu!?

Eeen ætli það sé ekki best að ég snúi mér aftur að vinnu minni (að tala í símann, eins og mér einni er lagið) ;) :haha:

kv. Ingibjörg


» 13 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 00:18:22 / 2_ff

Sumarfrí

ég vildi bara kasta kveðju á ykkur og óska ykkur til hamingju með að hafa lokið við annað árið í kvennó!

held nu að við getum öll verið sammála um að þetta ár var 100x betra en það fyrra og ég efa það ekki að þriðja verði ennþá skemmtilegra!

Vona að þið séuð sátt með einkunnirnar ykkar og njótið þess að vera algjörlega komin í sumarfrí!

Reynum nu svo að gera eitthvað skemmtilegt i sumar, halda kannski bekkjarparty, fara saman i útilegu eða eitthvað! við eigum nu altaf eftir að fara í þessa blessuðu sumarbústaðaferð; )

en ég ætlaði mer nu að hafa þetta stutt, svo bara takk æðislega fyrir árið! vona að þið hafið það sem best!

Kær sumarkveðja

Linda


» 45 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 18:32:40 / 2_ff

hæ allirsaman:)

Vil þakka ykkur fyrir síðast, og takk Vilborg fyrir æðislegt fyrirparty: ) vona að þið hafið öll skemmt ykkur æðislega!

Og til hamingju að vera komin í sumarfrí!

Vildi síðan bara láta ykkur vita að ég verð ein heima á morgun (eurovision - laugardagskvöld) og ef að ykkur leiðist, þá verð ég með eitthvað dæmi heima, og ykkur er meira en velkomið að kikja ef að þið viljið: ) (8689331)

annars vona ég bara að þið hafið það sem best!

au revoir;***

Kv. Linda


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 19:57:36 / 2_ff

Halló...

Jæja krakkar mínir....

..nú eru prófin búin og lokaballið að fara að skella á...sem sagt á morgun!:D ooog þarna eins og flestir vita þá hef ég tekið að mér að halda fyrirpartý...pælingin er sú að þeir sem ætla að koma og borða..það er gæða sér á ljúfengum tortillum eða tortium eða taco eða hvað sem þið kallið það;) þá er mæting um sex - hálfsjö...seinasta lagi hálfsjö! og þeir sem ætla ekki að borða mega að sjálfsögðu mæta þá einnig eða barra seinna...jú ráð:) en barra um að gera að mæta annars fer ég í alveg meitjör fýlu og hætti kvennó....ókei?

en annars vill ég barra óska ykkur innilega með að vera búin í  prófunum og barra lets portí big tæm á morgun...ég meina þetta er nú seinasta fyrirpartý og ball hjá bekknum okkar:( en barra ókei..þá held ég að þetta sé komið:D

Kveðja Vilborg partýhólder...


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 13:27:09 / 2_ff

skandall..

Flensa = veikindi
veikindi = Gabriella
Gabriella = ekki komast í prófið í dag
Ekki komast í prófið í dag = sjúkrapróf
Sjúkrapróf = Fimmtudagurinn 18 maí
Próf fimmtudaginn 18 maí = Ekkert Lokaball
Ekkert Lokaball = Aukamiði
Aukamiði = Hver vill fá..


Já sá skandall hefur komið upp að hún Gabriella krækti sér í hvorki meira né minna en verstu flensu í sögu minnar...

En man ég það ekki rétt að hún Guðrún var næst á listanum með lausa miða?

En það eiga ófáir eftir að borga....þið VERÐIÐ að muna það á morgun!!!!!!

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 12:37:16 / 2_ff

Ekki örvænta!!!

Þið, kæruð samnemendur(sérstaklega Gabriella) voruð orðin væntanlega hrædd um þau hræðilegu atburðu undanfarið varðandi miðana á ballið.. EN ljósið er komið og þið þurftið ekki lengur að vera hrædd við allta það sem gæti gerst, helduru skulu þið horfa fram á við og sjá þetta ljós sem mun skína og leyfa ykkur að njóta þess(hljómar kinky?) EN svo ég komi mér nú að aðalatriðinu.. sem allir hafa beðið eftir lengi og voruð byrjuð að velta miklum vöngum yfir. Þið þurftð ekki að vera hrædd... bekkjarpartýið og ballið verður æðislegt... enda verð ég á báðum stöðum ;) hahahah... :D Yousef

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 13:27:58 / 2_ff

Klikkkaður

Er einhver að fara fremja sjálfsmorð? Hoppa fram af byggingu eða skera sig á háls? Er einhver sem er að fara til útlanda og er orðin dauð hrædd um framtíðina??...er einhver sem spáir því að verða veik/ur?

EF SVO ER ÞÁ ER ÉG MEÐ LAUSNINA!!!!

Hringdu bara í mig og seldu mér miðann þinn á lokaballið, þá er vandamálið úr sögunni og þú getur haldið áfram mig þínar áætlanir!

Með kveðju, Yousef - dúdinn sem reddar öllu


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5